úff! nú er mikið búið að vera að gerast og ég nenni varla að
setjast niður við tölvuna og pikka frá mér allt vit.. en geri það
nú SAMT
En ég er nú samt duglegri að blogga en SUMIR (Ester, Thule-inn,
Sveinbjörg!!!) uss!
Á mánudaginn var eiginlega svona síðasti skóladagurinn, en það var
sparifatadagur að auki og mætti allur 4.bekkur spariklæddur. Við
nutum síðustu tímanna okkar og drukkum síðan kaffi og kökur með
kennurunum.
Dimissionið var svo í gær og það var svakasvaka, við kláruðum
vagninn okkar kvöldið áður sem var án efa sá flottasti á svæðinu og
augljóslega sá vagn sem mest vinna var lagt í. þar að auki vorum
við með flottustu búningana (þó að T-unit hafi verið sooldið
flottir). Fyrst söng 4.bekkur sinn síðasta söngsal uppá Gamla Sal
sem var gaman að venju og svo voru bekkirnir kallaðir einn í einu
og við vorum síðan borin útúr skólanum í kóngastól af busunum okkar
og látin fara í gegnum þrautabraut þar sem við þurftum að skríða
yfir bíldekk, hoppa yfir og skríða undir einhverjar slár og enda á
því að hoppa ofan í ísskalda barnasundlaug, brr! en til að gera
þetta nú skemmtilegra, vorum við látin gera þetta með bundið fyrir
augun, en eftir þrautabrautina, sprautaði kúreki framan í okkur
vatni og veitti okkur útgönguleyfi úr skólanum.
þá var að koma sér í búningana (eftir að hafa náð hita í ískaldar
tærnar) sem var nú ekki mikið mál (hefði maður nú haldið), svört
föt, svört lambhúshetta og grænn hólkur en auðvitað tókst sumum
strákum (Stebba) að gera sér þetta mjög erfitt... en það gæti samt
eitthvað tengst því að ermarnar snéru vitlaust.. eða eitthvað.
þegar öllum bekkjum hafði tekist að koma sér í sína búninga, bauð
Jón Már uppá grillaðar pylsur og pepsi og náði Kolla að smella af
einni mynd af mér þegar ég sit með sælusvip í grasinu eftir að hafa
gætt mér á dýrindispylsu, hamingjusöm baun þar á bænum

þar á eftir tók Palli ljósmyndari myndir af öllum
bekkjunum...vúbbíjajjey og allt það..
eftir það tók við löng bið á vögnum fyrir 4F; G; H; T; U og X
bekkina því bílstjórinn fyrir A bekkinn var týndur.. en á meðan
byggðist upp alveg gríðarleg spenna á milli H-bekkjarins og
F-bekkjarins sem einungis gat endað með óskupunum en til að tryggja
að við gætum einbeitt okkur að H-inu voru gerðir friðarsamingar við
X-ið og U-ið (enda höfðum við séð að X-ið átti grííðarlegan forða
af vatnsblöðrum og U-ið, var, jáhh, heavily armed, to say the
least). Þegar bílstjóri A-bekkjarins hafði loksins fundist og verið
komið fyrir á sínum stað innan í vélinni var tekið af stað, á sama
augnabliki hófst stríðið og rigndi yfir okkur rjómaþöktum
vatnsblöðrum frá viðbjóðins Háinu en þau fengu sko sinn skerf af
baunum og vatnsblöðrum frá okkur, erfitt er nú að segja hver hafi
unnið þá lotu en segja mætti að miðhólfið í vagninum okkar hafi
orðið verst úti, við vorum allar hundblautar, en hugsað hafði verið
fyrir þessu eins og öllu öðru og voru búningarnir okkar fóðraðir að
innan með byggingarplasti þannig að ekki var skaðinn mikill

(nema hvað manni varð helvíti kalt fyrst, en það er bara
aumingjaskapur! ) vert er samt að þakka busunum okkar fyrir
vatnsbyssurnar og vatnsblöðrunar sem þau gáfu okkur, þetta kom sér
vel! fórum við þá að keyra um bæinn og heilsa upp á hina og þessa
kennara sem hafa fylgt okkur í gegnum tíðina. meðfram því voru svo
háðar orrustur á milli, getiði hverra? Þegar á leið virtist sem
H-ið hefði klárað vatnsblöðrubirgðarnar sínar og voru þau þá hömsuð
með baunadýfum, hah! Alger óþarfi ætti svo að vera að minnast á að
löggan stoppaði okkur einu sinni..

(ha? lenti Jóna enn einu
sinni í löggunni?

) kíktum einnig í Glerártorg og reyndum þar að
frelsa baunabræður okkar í Nettó en ekkert okkar reyndist vera með
pening til að geta frelsað eina einustu dós..
ef frá eru taldar nokkuð langar biðir sem voru talsverðar
moodkillers var þetta hin mesta og besta skemmtun!
Eftir að þessu lauk, tók við smá hvild sem ég ætlaði sko að nýta
vel en í hvert skipti sem ég lagði höfuðið á koddann hringdi
helvítis síminn og þurfti ég að hanga alveg alltof lengi í simanum
og eyddi þar með dýrmætum svefntíma, djöö..
Eftir þennan vannýtta svefntíma var svo boðið til veislu til
heiðurs útskriftarnemum sem stjórn Hugins hélt, var þar okkur og
kennurum boðið. þar voru nokkrar ræður haldnar, m.a. Hafliði, einn
af fallistum árgangsins sem flutti minni fjórðu bekkinga, Láki
kennari flutti minni nemenda (maðurinn er hótfyndinn) og loks
fluttu tvibbarnir Jón og Anna minni kennara. ég verð nú bara að
segja það að ég hef sjaldan heyrt svona margar skemmtilegar ræður á
einu kvöldi

svo voru sýnd myndbönd frá ferli okkar í MA, þar var
byrjað á að sýna frá busuninni okkar (fann enn og aftur
hræðsluhrollinn

), og endað á sýna okkur í söngsalnum og
þrautabrautinni fyrr um daginn, þá sló það mann!! þetta hefur maður
horft á nokkrum sinnum í gegnum árin, 4.bekkingar að hætta í
skólanum en þarna vorum við?! arg, við erum að hverfa! þegar þarna
við sögu var komið var henni Jónu endanlega lokið en ég gleymdi
auðvitað að segja frá því að nóttina áður greip mig ónotaleg veiki
sem hafði lítið látið kræla á sér um daginn, gvöðisélof (eða
fjandanum kannski?) en laust þá niður af fullum krafti og ég
hreinlega varð að leggjast i rúmið. hef ákveðið að taka harkalega á
því í Mývatnssveit um helgina, til að bæta fyrir (á samt eftir að
reyna að fitta þar inní einu stykki af útskriftarveislu..)
þá fer að ljúka alveg gríðarlega ýtarlegum pistli en ég ákvað að
skrifa þetta nú niður til að gleyma þessu ekki

ætlaði svo að
reyna að komast heim í sveit í dag en þar sem ég var ennþá rosalega
slöpp, gekk illa að pakka og enn verr að þrífa þannig að ég ákvað
að reyna að gera eins mikið og ég gæti og drífa mig bara í
fyrramálið
Verð samt að minnast á þau tímamót sem urðu þegar bekkjarmyndin
var tekin í gær. þá náðist Pési í fyrsta skipti á bekkjarmynd en ef
vel er að gáð má sjá rauðan hring

dreginn utan um hausinn
á honum, sjá drenginn, ég vissi að það tækist að koma honum á
eina mynd (sem væri ekki phótósjoppuð)
Eru þetta ekki annars flottar baunir? (ef einhver minnist á gúrku
eða papriku í commentum verður sá hinn sami bannfærður)
p.s. alveg er þetta merkilegt með mig og mína spádóma, þegar ég
spái einhverju þá er það garanterað að það fer alveg á hinn
veginn... ætla næst að spá Andorra sigri og að Mónacó muni ekki ná
stigi, sjáum til hvernig fer!
p.p.s loksins kom sú góða vinnuregla mín að cópýa alltaf textann
áður en ég pósta að góðum notum, en þegar ég ýtti á staðfesta kom
bara upp aðalsíðan, en ég var viðbúin og ýtti bara á ctrl+v og
voila! ekkert til spillis! (watch and learn, Sveinbjörg!)
p.p.p.s (má þetta?) svo virðist sem pési hafi náð að hakka sig inn
á síðuna sem ég náði í myndirnar á, þannig að ég veit ekkert hvort
að þær virki eður ei..
p.p.p.p.s (þetta má alveg örugglega ekki) nú eiga myndirnar alveg
áreiðanlega að virka! hah!