jonabjorg.blog.com

jonabjorg.blog.com

03.06.2005 00:30:10 / wledge

flafla

Fari það grábölvað!! Nú er liðið að kvöldi, ég komin með sítengdu (!) fartölvuna mína í kjöltuna og geri mig tilbúna undir frábæran pistill! En neeei, ég er andlausari en andskotinn, sem þó ætti alls ekki að vera andlaus því hann er and-skotinn (hahaha! :P)
En jú, meðan ég sat skökk inn í dráttarvél í dag duttu mér í hug hinar og þessar frábæru hugmyndir að pistlum sem ég var nánast búin að skrifa að mestu leyti, í höfðinu á mér. Man svo auðvitað ekkert af þessu núna og hvað þá hugmyndirnar sem voru í kollinum á mér í gær. Ég þyrfti að vera með svona litla stílabók um hálsinn og stíla í hana, eða ennþá betra diktafóninn minn, eða ennþá betra, stafræna diktafóninn minn, svona til að hafa þetta alveg öpp tú deit. Sé fyrir mér þegar ég kem heim að kvöldi, 58 hljóðfælar sem innihalda flestir eitt orð sem ég hef svo ætlað að nota sem kveikju. ,,Vals” og svo ætti að koma stórkostleg saga...sé alveg fyrir mér að þetta virki, rjerjerje

Er byrjuð að taka aftur myndir á símann minn, núna á sumrin er svo skemmtileg birta að það er alveg hægt að taka myndir á gamla skrapatólið, hér er ein sem ég tók á leiðinni heim frá Sigurdísi á mánudagskvöldið.. finnst þetta vera svona skjámynd, dökk mynd en samt sól ;)

ein pæling samt... geta marblettir lifnað við? Sko, ég VAR með marblett, á kannski ekki alveg algengasta stað, ekkert kinký þó, þessi marblettur sæist alveg ef ég færi í sund, í flegnum sundbol... you get the point.. ANYWAY, ég var með marblett, hann fór og svo pomm! Kominn aftur! Og ekki einasta nokkur einasta ástæða fyrir því að hann ætti að komið aftur, marblettaafturganga ef til vill? I’m haunted by a bruise!

Sé ástæðu til að fagna því að ég hef fengið aðgang að bloggi númer fjögur, ætli það séu engin verðlaun fyrir svoleiðis?! Til hamingju Jóna, þú ert hérmeð ofvirkur bloggari sem getur ekki látið sér eitt blogg nægja!

En fyrst ég er í sveitinni verður fólk bara að gjöra svo vel að sætta sig við að ég tali um vinnuna mína! Ég fékk þann vafasama heiður að fá að valta í dag, meðan pabbi lét fara vel um sig á sveitarstjórnarfundi! Til að hafa smá forsögu, þá er rétt að geta þess að þetta landsvæði er á sumrin eitt þurrasta svæði landsins og ber svo sannarlega nafn með rentu þessa daganna. Þegar ég s.s keyrði í eina átt sá ég ekkert því að það var rykmökkur í kringum vélina þannig að ég sá ekki múkk. En þegar ég keyrði hinsvegar í hina áttina sá ég ekkert hvað ég var að valta, svo basically, sama staða. Nú er einmitt gaman að segja frá því að pabba fannst góð hugmynd að lána nýju vélina og ég þurfti að hökta í gamla massey og hann er ekki með loftkælingu (eða svona loftkæling, a la Krít, blæs heitu) og þess vegna þurfti að vera opinn gluggi, í tilraun minni til að sjá eitthvað og steikjast ekki! Þetta varð til þess að ég leit svona út eftir fyrsta flagið , ég ákvað að taka ekki mynd eftir hin fjögur, you can do the math! (ef fólk sér það ekki.. þá er ég í raun alveg næpuhvít, svona í ætt við hvítahúsið á bakvið!)

verð samt að leiðrétta eitt að lokum, ég fer ekki í sund, og ef ég færi í sund, svona til að hafa það á hreinu færi ég aldrei í bleikan sundbol!

Jakobína skrifaði
Ég skulda þér 600 kall. Minntu mig á það, ég borga alltaf það sém ég skulda....
Jakobína skrifaði
P.S. Það er auljóst merki um að maður þurfi að eignast áhugamál þegar maður er farinn að pæla í því hvað maður ætlar að blogga um mörgum klst. áður en maður lætur verða af því ;)
JBH skrifaði
þú skuldar mér 600 kall!! þegar maður situr inní dráttarvél er ekki um mörg áhugamál að ræða.. ég get t.d. því miður ekki prjónað um leið og ég keyri vélina, hef prófað það! :P
gudfinna skrifaði
ég átti bleikan sundbol þegar ég var lítil, og á núna bleikt bikini:/ sveittann

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

RSS tengill